
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Formaður VR óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Slíkt geti leitt til mikils óróa. verði samningum á almennum markaði sagt upp. Forsenduákvæði samninga á opinberum markaði virkjast
Forsætisráðherra Frakklands vísaði ásökunum um óþarfa hörku lögreglu vegna mótmæla framhaldskólanema á bug í sjónvarpsávarpi í dag og boðaði aðgerðir til að koma til móts við kröfur mótmælenda.
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum. Sambandið vill fækka skyndilausnum.
Múlaþing sér hvorki hag í að leigja salinn í Valaskjálf, né að kaupa húsið og breyta hótelinu í bæjarskrifstofur. Byggðarráð segir hótelið bæði óhentugt að stærð og of dýrt.
Verulega dregur úr íþróttaþátttöku barna eftir að grunnskólagöngu lýkur og marktækur munur er á þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi eftir uppruna.
Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Fréttir