Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Forsætisráðherra vongóð um að kjarasamningar haldi, þingmenn vilja gæsluþyrlu til Akureyrar og Marco Rubio á Íslandi

Forsætisráðherra er bjartsýn á að sátt náist á milli aðila vinnumarkaðarins á næstu klukkutímum eða dögum. Fulltrúar VR, Landssambands íslenskra verslunarmanna og Fagfélaganna, bíða enn eftir fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var 80 mínútur að fljúga á vettvang bílslyss á Jökuldal um helgina. Þingmenn úr fimm flokkum leggja til að á Akureyri verði komið upp fastri starfsstöð fyrir þyrlu Gæslunnar.

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á þingi vilja að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði formlega dregin til baka.

Opinberri heimsókn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands lauk um hádegi. Á blaðamannafundi ítrekaði hann mikilvægi Íslands í sameiginlegum vörnum á Norður-Atlantshafi.

Eftir margra mánaða málarekstur og mikla gagnrýni, hefur samruni Paramount og Warner Bros Discovery gengið í gegn. Við samrunann varð til nýtt fjölmiðlaveldi sem búist er við að breyti Hollywood til frambúðar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,