
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Spænska þingið felldi í dag tillögur ríkisstjórnarinnar um umbætur í húsnæðismálum. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir stjórnina og eykur þrýsting á að boðað verði til kosninga fljótlega.
Íbúar á Hornafirði fengu margir svimandi háa reikninga í heimabanka sinn þegar gjaldtaka hófst fyrir nýja hringveginn um Hornafjörð. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir mistök hafa verið gerð sem verði leiðrétt.
Samkvæmt könnun HMS vilja einungis 8% búa í stórum fjölbýlishúsum, en um 80% af húsnæði í byggingu á höfuðborgarsvæðinu með 17 íbúðum eða fleiri.
Í ræðu sinni við setningu norska stórþingsins sagði Hákon Noregskonungur að Noregur, og Evrópa öll, stæði frammi fyrir alvarlegustu öryggisógn frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

Fréttir