
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Hótanir í garð ráðamanna eru ógn við lýðræðið og hafa færst í aukana síðustu ár, segir yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Sérsveitarmaður fylgdi utanríkisráðherra í Reykjavíkurmaraþoninu vegna alvarlegra hótana.
Breska lögreglan hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um undirbúning hryðjuverka nærri herstöð í Bretlandi. Bandaríkjaforseti segir bandarísk yfirvöld hafa haft fimmmenningana til rannsóknar í lengri tíma.
Sérfræðingur segir frumvarp mennta- og barnamálaráðherra um aðgang barna að samfélagsmiðlum geta hjálpað foreldrum með skýrum félagslegum viðmiðum.
Suðrænir flækingsfuglar eru æ tíðari gestir á Íslandi vegna hlýnandi loftslags, segir fuglafræðingur. Flækingurinn bognefur sást í Vestmannaeyjum um helgina.

Fréttir