Fram og til baka

Leyft öllum aldurshópum

Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur

Gestur dagsins í fimmunni, Eva Rún Þorgeirsdóttir, fékk á dögunum verðlaun kennd við Guðrúnu Helgadóttur fyrir nýja barnabók, Bestu vinir, sem hún skrifaði með Blævi Guðmundsdóttur. Í umsögn dómnefndar kemur fram að sagan sé vel skrifuð á góðu máli sem hæfi aldri væntanlegra lesenda. Sögupersónur séu vel skapaðar og sagan bæði spennandi og skemmtileg. Eva Rún hefur líka unnið á fjölmiðlum, m.a. í Stundinni okkar á RÚV og einnig á Stöð 2. Svo er hún líka jógakennari. Hún hefur því frá mörgu og skemmtilegu að segja.

Í síðari hlutanum voru atburðir dagsins og afmælisbörn á dagskrá

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,