Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur
Gestur dagsins í fimmunni, Eva Rún Þorgeirsdóttir, fékk á dögunum verðlaun kennd við Guðrúnu Helgadóttur fyrir nýja barnabók, Bestu vinir, sem hún skrifaði með Blævi Guðmundsdóttur.
Greipjokes á internetinu hefur slegið í gegn og fær milljónir áhorfa í hverri viku. Það er ungur Íslendingum, Greipur Hjaltason sem er á bak við karakterinn Greip sem er einhverskonar vitlaus og bláeygur heimspekingur sem kemur með undarlegar og skemmtilegar fullyrðingar um Ísland og lífið og tilveruna. Greipur kom í Fimmu og talaði um fimm rithöfunda.
Svo minntumst við Helga Pé og skoðuðum það sem gerðist á deginum

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.