Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur
Gestur dagsins í fimmunni, Eva Rún Þorgeirsdóttir, fékk á dögunum verðlaun kennd við Guðrúnu Helgadóttur fyrir nýja barnabók, Bestu vinir, sem hún skrifaði með Blævi Guðmundsdóttur.
Felix Bergsson fer Fram og til baka með hlustendum í sérstakri hátíðarútgáfu á fyrsta maí, baráttudegi verkalýðsins. Gestir hans eru Pálmi Sigurhjartarson tónlistarmaður, Jakob Tryggvason formaður Rafiðnaðarsambandsins og Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefnastjóri eigin dagskrárgerðar hjá Hörpu.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.