Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur
Gestur dagsins í fimmunni, Eva Rún Þorgeirsdóttir, fékk á dögunum verðlaun kennd við Guðrúnu Helgadóttur fyrir nýja barnabók, Bestu vinir, sem hún skrifaði með Blævi Guðmundsdóttur.
Álfrún Gísladóttir eða Alfie er íslensk leikkona sem hefur vakið athygli bæði hér heima og í Bretlandi. Hún er að leika eigin sýningu sem heitir Dead Air og fjallar þar um konu í sorg sem reynir að ná sambandi við látinn föður sinn í gegnum gervigreindina. Álfrún kom í fimmu og talaði um fimm dauðsföll sem hafa haft áhrif á líf hennar og þar kenndi aldeilis margra grasa.
Í seinni hlutanum litum við á það sem gerðist á deginum og lékum tengda tónlist

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.