Skjaldborg, Gríman, gróska í íslenskri og erlendri kvikmyndagerð og leikhússenu
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur að þessu sinni voru Sigríður Jónsdóttir sérfræðingur á leikminjasafni Íslands og leikhúsgagnrýnandi, og Hrönn Sveinsdóttir kvikmyndagerðarkona og framkvæmdastjóri Bíó Paradís.
Til umræðu voru Grímuverðlaunin, heimildarmyndahátíðin Skjaldborg, rússneski kvikmyndaleikstjórinn Andrei Tarkovsky, Gunnar Eyjólfsson leikari, útskriftarhátíð kvikmyndadeildar Listaháskóla Íslands og líf í grasrót íslenskra sviðslista og kvikmyndagerð.
Birt
29. maí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Endastöðin
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.