Líðan og samfélagsmiðlar
Hver er upplifun ungmenna af eigin notkun á samfélagsmiðlum? Hvaða ráð gefa þau þeim sem yngri eru og vilja ólm byrja að nota þá? Er eitthvað í umhverfi þessara miðla sem ýtir undir…
Börn og ungmenni yngri en 13 ára mega ekki búa sér til aðgang að samfélagsmiðlum. Samt eru sextíu prósent 9-12 barna á Íslandi með aðgang að TikTok og Snapchat.
Rætt er við Skúla Braga Geirdal, verkefnastjóra miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd, um mikilvægi þess að virða aldurstakmörk á samfélagsmiðlum. Fulltúar í ungmennaráðum Samfés og Samtakanna ?78 segja frá upplifun sinni.

Fræðsla fyrir börn og ungmenni um samskipti og líðan á netinu, áhorf á klám, fréttir og falsfréttir og ábyrga notkun samfélagsmiðla í tengslum við upplýsinga- og miðlalæsisviku á Íslandi. Fræðslan er byggð á niðurstöðum víðtækrar rannsóknar Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands sem nefnist Börn og netmiðlar.