Með okkar augum

Þáttur 2 af 6

Við kynnumst sköpunargleði Elínar Sigríðar Maríu, listakonu Listar án landamæra og ræðum við Ásdísi Elínu sem starfar í Smiðjunni í Grafarvogi. Auk þess tökum við hús á sitjandi borðtennisköppunum Hákoni Atla og Jónu Kristínu og fáum leiðsögn forseta Alþingis um nýbyggingu þess. Farið er á Nauthól í Smakkið. Í Tvennunni er rætt við mæðgurnar Svandísi Svavarsdóttur og Unu Torfa. Loks kynnumst við samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Frumsýnt

21. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Með okkar augum

Með okkar augum

Fjórtánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,