Risaeðla
Hvernig litu risaeðlurnar út? Hvernig vitum við svona mikið um þær? Kannski vita keppendur dagsins eitthvað meira en við um þær...
Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.