• 00:01:18Matur í skólum
  • 00:14:00Samgöngumál í borginni
  • 00:21:24Leikhús Rauða Krossins

Kastljós

Unnar kjötvörur í skólum, kosningamál unga fólksins. flóttafólk stofnar leikhóp

Skiptar skoðanir eru á nýrri matarstefnu Reykjavíkurborgar, þar sem bann er lagt við unnum kjötvörum í leik- og grunnskólum nema í undantekningartilfellum. Meirihlutinn segir með þessu stuðlað aðgengi næringarríkum mat óháð efnahag og benda á unnar kjötvörur innihaldi skaðleg efni. Minnihlutinn gagnrýnir meirihlutann fyrir fara offari og útiloka meðal annars hefðbundinn heimilismat, sem hluti af íslenskri matarmenningu. En hversu algengar eru unnar kjötvörur á matseðlum skólanna? Ellen Alma Tryggvadóttir, næringarfræðingur og verkefnastjóri hjá embætti landlæknis í fer yfir málið?

Það þarf koma til móts við fólkið sem notar almenningssamgöngur, segir ungur maður sem er stundum rúmlega klukkutíma komast til vinnu með strætó. Kastljós fjallar um nokkur málefni sem kosið er um í sveitarstjórnarkosningum á næstu vikum.

Óvenjulegur leikhópur sýnir sitt eigið verk í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Leikararnir eru á öllum aldri, tala ólík tungumál og eiga það allir sameiginlegt vera flóttafólk. Við lítum á æfingu.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

15. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,