Aldrei fór ég suður, GDRN og JóiPé
Í lokaþætti vetrarins kíkti Katla vestur á Ísafjörð í veðurblíðuna en þar fer hátíðin Aldrei fór ég suður fram á hverju ári. Þar hitti hún GDRN og spurði gesti hátíðarinnar um tískuna.
Í þessum þætti kíkjum við á undankvöld Músíktilrauna sem fer fram í Hörpu ár hvert. Þar hittum við nokkra hressa keppendur sem segja okkur frá tónlist sinni. Næst hittum við hljómsveitina Fókus frá Höfn í Hornafirði en hún hefur spilað víða um land eftir að hún bar sigur úr býtum í Músíktilraunum í fyrra.

Hvað er í gangi? Hressandi þáttur þar sem Daníel og Katla hitta skemmtilegt fólk, kíkja út á lífið og kryfja ýmis mál. Umsjón: Daníel Óskar Jóhannesson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir.