Aldrei fór ég suður, GDRN og JóiPé
Í lokaþætti vetrarins kíkti Katla vestur á Ísafjörð í veðurblíðuna en þar fer hátíðin Aldrei fór ég suður fram á hverju ári. Þar hitti hún GDRN og spurði gesti hátíðarinnar um tískuna.
Að þessu sinni í Hvað er í gangi? halda þau Katla og Daníel áfram að bera fram spurninguna hvar sé best að læra? Er það í Hallgrímskirkjunni eða jafnvel heima hjá ömmu hennar Jónu?
Ásamt því takast þau á við óttann! Hvað er Daníel hræddur við? Hvað er Katla hrædd við?

Hvað er í gangi? Hressandi þáttur þar sem Daníel og Katla hitta skemmtilegt fólk, kíkja út á lífið og kryfja ýmis mál. Umsjón: Daníel Óskar Jóhannesson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir.