Aldrei fór ég suður, GDRN og JóiPé
Í lokaþætti vetrarins kíkti Katla vestur á Ísafjörð í veðurblíðuna en þar fer hátíðin Aldrei fór ég suður fram á hverju ári. Þar hitti hún GDRN og spurði gesti hátíðarinnar um tískuna.
Í þessum þætti hittu Daníel og Katla Arnór Björnsson, sérfræðing í bollusmakki og brögðuðu mögulega á bestu bollum Íslands. Fjórir framhaldsskólar kepptu í bolluáti en aðeins einn stóð uppi sem sigurvegari. Katla náði tali af tveimur umsjónarmönnum Gettu Betur, þeim Helgu Margréti og Kristni Óla á meðan Daníel spjallaði við nokkra eldhressa nemendur í Flensborg og FG.

Hvað er í gangi? Hressandi þáttur þar sem Daníel og Katla hitta skemmtilegt fólk, kíkja út á lífið og kryfja ýmis mál. Umsjón: Daníel Óskar Jóhannesson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir.