Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994

9. febrúar 1994

Hemmi og Guðný aka inn í stúdíóið á sportbíl í upphafi þáttar. Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Kristjana Stefánsdóttir, Rask og Etta Cameron flytja tónlist, en nemendur úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar koma fram með söng og dans. Aðalgestur kvöldsins er Gísli Rúnar Jónsson, sem ræðir við Hemma og rifjuð eru upp brot úr ferli hans í sjónvarpi. Hemmi fer einnig í heimsókn til 100 ára íbúa á Droplaugarstöðum, og í leiknum Loftkastalanum safnast til góðgerðarmála.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. febrúar 1994.

Birt

30. sept. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.

Þættir

,