Séra Hermóður kemur svífandi inn í stúdíóið í upphafi þáttar. Sigtryggur dyravörður flytur tónlist og kór Íslensku óperunnar ásamt Gunnari Guðbjörnssyni flytur atriði úr Evgení Onegin. Aðalgestur kvöldsins er leikhúsmaðurinn Kjartan Ragnarsson, sem ræðir við Hemma og syngur Kæru Systur með hljómsveit hússins. Einnig eru flutt lög með Karma, Bjarna Arasyni og öðrum listamönnum, auk leikja og þolfimiatriðis í Loftkastalanum þar sem safnað er fé til góðgerðarmála. Þættinum lýkur með tónlist og fjöri á sviðinu.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. janúar 1994.
Birt
9. sept. 2020
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994
Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.