Hemmi og Guðný mæta í stúdíóið á Hreyfilsbíl og kynna fjölbreyttan skemmtiþátt. Todmobile, Halli Reynis og Páll Óskar Hjálmtýsson flytja tónlist og Mai Kai dansflokkurinn sýnir dansatriði. Aðalgestur kvöldsins er rithöfundurinn Guðbergur Bergsson. Einnig eru sýnd atriði úr leikritinu Standandi pína, Loftkastalinn kynntur, og innslag úr faldri myndavél þar sem óvænt er mætt í afmælisveislu. Þættinum lýkur með laginu Lífsgleði.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 10. nóvember 1993.
Birt
26. ágúst 2020
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994
Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.