Hemmi Gunn kemur akandi inn á rafmagnsbíl í upphafi þáttar og kynnir fjölbreytta skemmtidagskrá. Björn Thoroddsen flytur tónlist, Harlem Globetrotters spila körfubolta í stúdíóinu og Rúnar Georgsson flytur lagið Tequila með danspörum. Aðalgestur kvöldsins er Össur Skarphéðinsson, sem ræðir við Hemma í sófanum. Einnig koma fram The Boys með bítlasyrpu og innslag úr faldri myndavél er sýnt. Í lok þáttar flytur Siggi Johnny lagið Bona Sera
Þátturinn var fyrst á dagskrá 13. október 1993.
Birt
5. ágúst 2020
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994
Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.