Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan I
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Íslandsklukkan sem kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu…
Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001.
Pétur Eggertsson ræðir við Árna Heimi um nýútkomna ævisögu Jórunnar Viðar, en Jórunn kom víða við á ferlinum og samdi margar helstu perlur íslenskra tónbókmennta - en ævi hennar hefur ekki áður verið gerð jafn ítarleg skil þrátt fyrir þau miklu áhrif sem hún hafði á tónlistarlífið.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.