
Þjóðarþel: Landnám Íslendinga í Vesturheimi
Fjallað um landnám Íslendinga í Vesturheimi. Lesið úr bréfum og frásögnum sem birtust í blöðum og bókum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1996)
Fluttar eru nokkrar sögur úr segulbandasafni því sem Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Fransdóttir kona hans komu með úr ferð til Kanada og Bandaríkjanna þar sem þau söfnuðu viðtölum og frásögnum meðal Vestur-Íslendinga. Rætt er við Gunnar Sæmundsson, um sagnaskemmtan í Vesturheimi og Guðrún Þórðardóttir, um lækningu að handa. Óli Jósefsson segir frá Kristjáni Geiteyingi, Edvarð Gíslason, fer með vísu um séra Jón Bjarnason. Kristinn Oddsson í Vancouver segir frá tungumálablöndu „Mister gripakaupmaður", Bergþóra Sigurðsson í Vancouver, segir frá því sama "Senda konu kall klukkan 10" ; Eðvarð Gíslason frá Nýja Íslandi, talar um sögur. Einnig er rætt við Gísla Sigurðsson á Árnastofnun um útgáfu á safninu sem hann vinnur að og Vestur-Íslendinga samtímans, en Gísli var við nám í Kanada.
Umsjón: Anna Margrét Sigurðardóttir.

Fjallað um landnám Íslendinga í Vesturheimi. Lesið úr bréfum og frásögnum sem birtust í blöðum og bókum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1996)