Tuttugasti og fjórði þáttur
Fluttar eru nokkrar sögur úr segulbandasafni því sem Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Fransdóttir kona hans komu með úr ferð til Kanada og Bandaríkjanna þar sem þau söfnuðu viðtölum…
Leiknar eru upptökur Jóns Karls Helgasonar frá Íslendingabyggðum í Kanada en þangað lá leið hans í nóvember 1995. Stefán Stefánsson í Gimli segir frá landnáminu og safnahúsinu. Neil Bardal, ræðismaður Íslands í Winnipeg segir frá landnáminu og þróun þess. Einnig segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, frá heimsókn sinni og fleiri borgarfulltrúa á Íslendingaslóðir í Kanada fyrir skömmu.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.

Fjallað um landnám Íslendinga í Vesturheimi. Lesið úr bréfum og frásögnum sem birtust í blöðum og bókum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1996)