Tuttugasti og fjórði þáttur
Fluttar eru nokkrar sögur úr segulbandasafni því sem Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Fransdóttir kona hans komu með úr ferð til Kanada og Bandaríkjanna þar sem þau söfnuðu viðtölum…
Flutt eru tvö brot úr segulbandasafni því sem Hallfreður Örn Eiríksson og kona hans Olga Fransdóttir söfnuðu meðal Vestur-Íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum 1972-73. Þetta safn er nú í eigi Árnastofnunar. Guðjón Árnason og Eðvarð Gíslason segja frá landnámi Íslendinga í Nýja-Íslandi. Rætt er við Harald Ólafsson, mannfræðing, um þann helgisagnablæ sem er á sögnum fólks um landnámið og samanburð við landnámssögur Rómverja, Ísraela og Íslendinga. Sigurður Pálsson les úr ljóðaflokki sínum „Ljóðnámuland".
Umsjón: Anna Margrét Sigurðardóttir.

Fjallað um landnám Íslendinga í Vesturheimi. Lesið úr bréfum og frásögnum sem birtust í blöðum og bókum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1996)