Súrinn

5. þáttur: Heilög Fransiska og Alaskasúrinn

Hvernig endar súrdeigsmóðir, sem er beintengd sænsku konungsfjölskyldunni og Nóbelsverðlaununum, í Mosfellsbæ? Og hvernig flækist hún þaðan á Djúpavog? Ragnheiður Maísól hittir þessa víðförlu súrdeigsmóður sem nefnist Heilög Fransiska. Svo er það hin súrdeigsmóðirin á Höfn í Hornafirði sem hefur jafnvel ferðast víðar og rekja alla leið aftur til gullæðisins í Bandaríkjunum. Já, og hvað er þetta með nefna súrdeigsmóðurina?

Í þættinum er rætt við Hildi Margrétardóttur, Grétu Mjöll Samúelsdóttur og Andrés Bragason.

Lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.

Umsjón og dagskrárgerð: Ragnheiður Maísól Sturludóttir.

Framleiðsla og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir

Frumflutt

29. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Súrinn

Súrinn

Í þúsundir ára hefur mannfólkið bakað ilmandi súrdeigsbrauð í samstarfi við örverur súrdeigsins. En súrdeigsbakstur á Íslandi nær þó varla svo langt aftur? Hver ætli elsti súr á Íslandi og hvar er hann finna? Ragnheiður Maísól Sturludóttir leggur af stað í rannsóknarleiðangur til þess komast uppruna súrdeigsins á Íslandi. Við nánari skoðun á þessari litlu deigklessu vakna stórar spurningar um mannfólkið og tengsl okkar við heiminn.

Þættir

,