Róberta Andersen féll snemma fyrir gítarnum, en spunaþráin kom þegar hún sá tríó Hilmars Jenssonar spila á Akureyri skömmu fyrir aldamót. Frá þeim tíma hefur hún leikið allskyns músík með allskyns tónlistarmönnum og hljómsveitum, meðal annars Moses Hightower, múm, Ólöfu Arnalds, Sin Fang, Julianna Barwick, Pascal Pinon og Hist og. Hún vinnur nú að breiðskífu sem verður vísir að tónlistaruppeldissögu hennar.
Birt
3. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Straumar
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson