Saxi og Sachsi

Allir í sleik

Saxi og Sachsi hitta svissneskan mann sem er ekki mikill saxófónaðdáandi. Einnig heimsækja þeir ungfrú eitís til fræðast um íslenska glamúrlífið og kryfja helsta gimstein saxófóntónbókmennta níunda áratugarins: Careless whisper.

Frumflutt

5. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Saxi og Sachsi

Saxi og Sachsi

Þeir eru stimamýksti, saxófóndúett landsins, Skafti og Skapti íslenskrar tónlistar en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hafa þeir ekki meikað það.

Eða er ástæðan kannski augljós? Af hverju er svo mörgum svona illa við saxófóna? Saxi og Sachsi rannsaka málið.

Umsjón:

Eiríkur Stephensen (Saxi)

Úlfur Eldjárn (Sachsi)

Þættir

,