Sankti María, sestu á stein

Sjöundi þáttur

Í þessum þætti er fjallað um dýrlingana Barböru, Nikulás, Lúsíu, Tómas postula og Þorlák helga. Tvær miðaldastyttur af heilagri Barböru hafa fundist við fornleifauppgröft hér á landi og til er íslenskur söngur um hana, Barbárudiktur. Heilagur Nikulás var vinsæll dýrlingur hér á landi og varðveist hafa tíðir honum helgaðar, hið sama á við um Þorlák helga sem var frægasti íslenski dýrlingurinn. Þó vinsældir Lúsíu á Íslandi væru minni er til brot úr tíðasöng fyrir hana, "Per te Lucia virgo" sem hefur verið hljóðritað fyrir þennan þátt í flutningi Benedikts Kristjánssonar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Kristján Franklín Magnús og Jórunn Sigurðardóttir.

Frumflutt

18. nóv. 2021

Aðgengilegt til

17. ágúst 2024
Sankti María, sestu á stein

Sankti María, sestu á stein

Um hlutverk dýrlinga í íslensku mannlífi fyrr á öldum.

Átta þátta röð um dýrlingatrú á Íslandi á fyrri öldum. Enda þótt reynt væri uppræta tignun dýrlinga hér á landi eftir mótmælendatrú tók við af hinni kaþólsku á 16. öld reyndist dýrlingatrúin furðu lífseig. Jafnvel eftir siðaskipti voru ort og sungin kvæði um dýrlinga, og þeir rötuðu inn í þjóðtrú og þjóðsögur. Í þáttunum verður fjallað um íslenska menningu tengda dýrlingum: tónlist, ljóð, sögur og þjóðtrú. Nokkrar tónsmíðar úr íslenskum fornhandritum voru hljóðritaðar sérstaklega fyrir þættina í flutningi Benedikts Kristjánssonar söngvara. Í fyrsta þætti verður sjónum beint fjórum dýrlingum: Antoníusi, Agnesi, Páli og Brígið, og reynt verður svara ýmsum spurningum, svo sem þessum: Hvaða kraftaverk gerði heilagur Antoníus á Íslandi árið 1417? Af hverju á gefa hröfnum á Pálsmessu? Hver var Flauta-Bríet? Umsjón með þáttunum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,