Sankti María, sestu á stein

Fyrsti þáttur

Átta þátta röð um dýrlingatrú á Íslandi á fyrri öldum. Enda þótt reynt væri uppræta tignun dýrlinga hér á landi eftir mótmælendatrú tók við af hinni kaþólsku á 16. öld reyndist dýrlingatrúin furðu lífseig. Jafnvel eftir siðaskipti voru ort og sungin kvæði um dýrlinga, og þeir rötuðu inn í þjóðtrú og þjóðsögur. Í þáttunum verður fjallað um íslenska menningu tengda dýrlingum: tónlist, ljóð, sögur og þjóðtrú. Nokkrar tónsmíðar úr íslenskum fornhandritum voru hljóðritaðar sérstaklega fyrir þættina í flutningi Benedikts Kristjánssonar söngvara. Í fyrsta þætti verður sjónum beint fjórum dýrlingum: Antoníusi, Agnesi, Páli og Brígið, og reynt verður svara ýmsum spurningum, svo sem þessum: Hvaða kraftaverk gerði heilagur Antoníus á Íslandi árið 1417? Af hverju á gefa hröfnum á Pálsmessu? Hver var Flauta-Bríet? Umsjón með þáttunum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Kristján Franklín Magnús og Jórunn Sigurðardóttir.

Frumflutt

7. okt. 2021

Aðgengilegt til

17. ágúst 2024
Sankti María, sestu á stein

Sankti María, sestu á stein

Um hlutverk dýrlinga í íslensku mannlífi fyrr á öldum.

Átta þátta röð um dýrlingatrú á Íslandi á fyrri öldum. Enda þótt reynt væri uppræta tignun dýrlinga hér á landi eftir mótmælendatrú tók við af hinni kaþólsku á 16. öld reyndist dýrlingatrúin furðu lífseig. Jafnvel eftir siðaskipti voru ort og sungin kvæði um dýrlinga, og þeir rötuðu inn í þjóðtrú og þjóðsögur. Í þáttunum verður fjallað um íslenska menningu tengda dýrlingum: tónlist, ljóð, sögur og þjóðtrú. Nokkrar tónsmíðar úr íslenskum fornhandritum voru hljóðritaðar sérstaklega fyrir þættina í flutningi Benedikts Kristjánssonar söngvara. Í fyrsta þætti verður sjónum beint fjórum dýrlingum: Antoníusi, Agnesi, Páli og Brígið, og reynt verður svara ýmsum spurningum, svo sem þessum: Hvaða kraftaverk gerði heilagur Antoníus á Íslandi árið 1417? Af hverju á gefa hröfnum á Pálsmessu? Hver var Flauta-Bríet? Umsjón með þáttunum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,