Samfélag og samfélagsmiðlar

Leyft öllum aldurshópum

Algóritmar og skautun

Hvað er átt við þegar talað er um algóritma? Í þættinum er rætt við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar um algóritmana og hvernig þeir virka; annars vegar til að selja okkur vörur og þjónustu og hins vegar til að beina til okkar efni sem forritið telur okkur hafa áhuga á, þar á meðal efni sem samfélaginu stafar hugsanlega hætta af. Þá er einnig rætt um hvaða áhrif svokölluð skautun getur hugsanlega haft á samfélagið og lýðræðisumræðu. Umsjónarmaður: Þorgeir Ólafsson.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Samfélag og samfélagsmiðlar

Í þáttunum er rætt um samfélagsmiðlana út frá mörgum sjónarhornum: Hvað er jákvætt eða neikvætt við þessa miðla, hvaða úrlausnarefni, áskoranir og hugsanlegar hættur stafa af þeim. Komið er inn á hatursorðræðu, öfgahópa, samsæris- og afneitunarsinna, áhrif á kosningar, skautun og traust í samfélaginu. Einnig um áhrif á líðan barna og unglinga, niðurstöður helstu rannsókna um notkun á samfélagsmiðlum og hlutverk fjölmiðla í almannaþágu á tímum upplýsingaóreiðu.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

Þættir

,