Þáttur 10 af 11
Sigríður Guðmundsdóttir sagði Hallfreði Erni Eiríkssyni sögu sem hún heyrði sem barn fyrir vestan af Gísla Súrssyni og frásögnin fengin úr bandasafni Stofnunar Árna Magnússonar. Því…
Aðaluppistaðan í þættinum er ræða Einars Más Guðmundssonar þegar hann tók við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs. Inn í hana er skotið frásögn Guðmundar Guðnasonar frá Hælavík þar sem hann segir frá bjarndýraveiðum fyrir vesta og frásögn Jónasar Kristjánssonar af æsku og uppvexti í Þingeyjarsýslu þar sem hann var alinn upp við þingeyska sagnahefð, báðar eru frásagnirnar úr bandasafni Árnastofnunar. Hallfreður Örn Eiríksson safnaði þessum frásögnum. Að lokum er flutt upptaka frá sagnakvöldi í Hlaðvarpanum, þar sem Árni Björnsson þjóðháttafræðingur sagði sögu frá vinnustað sínum, Þjóðminjasafninu

Þættir Ragnheiðar Gyðu Jónsdóttur frá árinu 1995.
Fjallað er um sagnamennsku, þjóðsögur og sannar sögur.