Saga hugmyndanna

Jólakötturinn og Grýla

Í þættinum ætlum við halda áfram velta fyrir okkur jólafyrirbærum og í dag eru það Grýla og jólakötturinn sem eru í aðalhlutverki. En við ætlum líka skoða fleiri sögur þar sem kettir eru aðal söguhetjurnar.

Kettir eru þekktir í þjóðsögum úti um allan heim sennilega vegna þess villikettir þekktust alls staðar. Þeir voru oft grimmir og vegna eðlis katta, þ.e. þeir eru sjálfstæðir og fara sínar eigin leiðir þá hefur verið erfiðara stjórna þeim en t.d. hundum sem hlýða okkur mönnum mun betur. Í þessum sögum eru kettirnir því oft lævísir, stundum illgjarnir og hreinlega vondir. Margar þjóðsagnir víða um heim nota köttinn til persónugera illa anda og óvættir t.d. sálir norna geti ferðast um í köttum.

Elstu heimildir um Grýlu eru í Sturlungu frá 13. öld og þar er henni lýst sem skrímsli með 15 hala.

„Hér fer Grýla, í garð ofan, og hefur á sér, hala fimmtán.“

Og í annari þulu frá 16. öld þá kemur Grýla fyrir og er enn með fimmtán hala en smá breyting hefur orðið á því er hún komin með hundrað belgi á hvern hala og tuttugu börn í hvern belg.

Við heyrum oft um þennan svakalega dúett, Grýlu og jólaköttinn, í kringum jólin og í þættinum fáum við m.a. vita hvað það þýðir ,,gefast upp á rólunum" eins og segir í vísunni góðu og hvað átti Grýla eiginlega marga menn og börn?

Myndin hér ofan, af jólakettinum, er birt með leyfi höfundar Hugleiks Dagssonar.

Heimildir: Saga jólanna eftir Árna Björnsson

Birt

17. des. 2015

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Saga hugmyndanna

Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá fólki, fyrirbærum og hugmyndum á upplýsandi hátt.

Þættir

,