Jólasól
Litla flugan setur á fóninn nokkur létt lög fyrir fólk á þönum og þeytingi. Það verður m.a. rokkað kringum jólatréð, heilsað upp á jólakettina fjóra , skoðað í skóinn hjá stórum og…
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.