Fangar Breta: Bakvið rimlana

4. þáttur: Kafbátamennirnir og hinir saklausu

Í þættinum er sagt frá þeim Íslendingum sem sömdu við Þjóðverja um stunda njósnir á Íslandi í skiptum fyrir siglingu heim til Íslands á stríðstímum. Einnig er sagt frá þeim Íslendingum sem Bretar álitu einfaldlega grunsamlega, þó aldrei tækist sanna á þá fylgisspekt við nasista eða áróðursstarfsemi gegn Bretum í heimsstyrjöldinni.

Viðmælandi er Gunnlaugur Þór Pálsson.

Umsjón: Snærós Sindradóttir.

Handrit: Sindri Freysson.

Tónlist í þáttunum: Sigurður Helgi Pálmason.

Frumflutt

28. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Fangar Breta: Bakvið rimlana

Fangar Breta: Bakvið rimlana

Í heimildarþáttunum Fangar Breta, sem sýndir eru á sunnudagskvöldum í janúar á RÚV, er fjallað um þá Íslendinga sem handteknir voru af Bretum í seinni heimsstyrjöld og vistaðir í breskum fangelsum án dóms og laga. Í útvarpsþáttunum Fangar Breta: Bakvið rimlana, er skyggnst enn frekar inn í líf þeirra sem þurftu þola þessar hremmingar og kafað nánar ofan í baksögur fólksins sem flest sat í fangelsi fyrir litlar sem engar sakir.

Umsjón: Snærós Sindradóttir.

Handrit: Sindri Freysson.

Tónlist úr sjónvarpsþáttum um Fanga Breta: Sigurður Helgi Pálmason.

Þættir

,