Djassland

Leyft öllum aldurshópum

John Coltrane - Upphafið

Tenórsaxófónleikarinn John Coltrane fæddist í Hamlet í norður Karólínufylki Bandaríkjanna 23. september 1926.

Tónlistarferill hans var ekki langur, en hann var nálægt þrítugu þegar hann fór að láta að sér kveða í hljómsveitum Miles Davis og Thelóníusar Monk. Sólóferillinn tók við sér í byrjun sjöunda áratugarins og goðsagnakenndur kvartett hans varð helsta viðmið nútímadjasstónlistarinnar á fyrstu árunum. Sífelld leit Coltranes að sinni rödd í tónlistinni varð til þess að hljóðfæraleikur hans fór langt út fyrir endamörk meginstraumsins og þrátt fyrir að ná mikilli hylli með plötum eins og A Love Supreme - urðu þreifingar hans undir lok ferilsins mörgum mjög framandi. Coltrane lést aðeins fertugur að aldri 1967.

Pétur Grétarsson bregður upp mynd af uppvexti hans og tónlistarferli fram að fyrstu sólóplötunum.

Lagalisti:

The Night Has A Thousand Eyes - Jerry Brainin - John Coltrane 1960

The sweetheart of Sigma Chi - Gene Austin - 1936

Warm Valley - Duke Ellington - Johnny Hodges og hljómsveit 1954

Sleep - Earl Bostic og hljómsveit hans 1951

Oleo - Sonny Rollins - Miles Davis kvintettinn 1956

Trinkle, tinkle - Thelonious Monk og John Coltrane 1957

So What - Kind of Blue - Miles Davis sextettinn 1959

Blue train - John Coltrane sextettinn 1958

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Djassland

Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.

Þættir

,