ok

Á vit undirdjúpanna

Draumurinn

Fimm ára gamall sá Marteinn Sindri Jónsson kvikmyndina The Big Blue sem átti eftir að breyta lífi hans. Myndin fjallar um fríkafara, sem reyna að kafa eins og djúpt og mögulegt er á einum andardrætti, án köfunartækja. Tuttugu árum síðar lærði hann loks að kafa.

Marteinn Sindri hefur nú gert þriggja þátta seríu um fríköfun fyrir Útvarpsleikhúsið.

Í þessum fyrsta þætti er hlustendum boðið í ferðalag ásamt íslenskum fríköfurum, Birgi Skúlasyni, Sigríði Lárusdóttur, Hauki Einarssyni, Önnu Maríu Einarsdóttur, Vilhelm Steinsen og Þorsteini Má Jónssyni.

Auk þess kynnast hlustendur Duniu Quintero Rosquete, spænskum afreksfríkafara og Jón Karl Helgason kvikmyndagerðarmaður segir frá rannsóknum sínum á köfunaríþróttum landnámsmanna á söguöld. Fríða Bjarney Jónsdóttir, móðir Marteins Sindra leikur einnig stórt hlutverk í þættinum.

Í þættinum hljómar frumsamin tónlist Báru Gísladóttur tónskálds.

Frumflutt

8. maí 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Á vit undirdjúpanna

Á vit undirdjúpanna

Í þremur heimildaþáttum fyrir Útvarpsleikhús Ríkisútvarpsins er fjallað um djúpköfunaríþrótt sem nefnist fríköfun (e.freediving). Fríkafarar reyna að kafa eins djúpt og mögulegt er á einum andardrætti, án köfunartækja.

Eftir því sem fríkafarar köfuðu dýpra á sjötta og sjöunda áratugnum tóku vísindamenn eftir því að mannslíkaminn tók miklum breytingum til þess að standast þrýsting hafdjúpanna. Líkami kafarans bregst við eins og líkami höfrungs eða annarra sjávarspendýra. Það hægir gífurlega á hjartslætti kafarans (10-20 slög á mínútu), blóðflæði til útlima stöðvast og þess í stað er því beint að mikilvægum líffærum auk þess sem miltað seytir súrefnisríku blóði.

Í ljós kom að mannslíkaminn er sérhannaður til köfunnar og er ástæðunnar sennilega að leita djúpt í þróunarsögu mannsins. Þetta hafa menningarheimar víða um hnöttinn fært sér í nyt í mannkynssögunni - perlukafarar, skutulveiðimenn og stríðsmenn hafa í gegnum söguna kafað í undirjúpin til að öðlast frægð og frama, eða einfaldlega salt í grautinn.

Fjallað er um hæfileika mannsins til að ögra hafdjúpunum sem munu alltaf koma til með að eiga síðasta orðið.

Umsjón: Marteinn Sindri Jónsson.

Tónlist: Bára Gísladóttir.

,