Á tónsviðinu

Mozart

Tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart fæddist árið 1756. Hann var því uppi á tíma Upplýsingarinnar svokölluðu, en hún fólst í breyttum viðhorfum sem margir heimspekingar, rithöfundar og stjórnmálamenn boðuðu á 18. öld. Þekking og vísindi áttu koma í staðinn fyrir hjátrú eða trúarkreddur, miskunnsemi og mannúð átti koma í stað grimmilegra refsinga, og einnig var boðað aukið frelsi og jafnrétti. Viðhorf Upplýsingarstefnunnar setja svip sinn á margar af tónsmíðum Mozarts og þar til dæmis nefna óperurnar "Brúðkaup Fígarós", "La clemenza di Tito" og "Töfraflautuna". Í þættinum verða leiknar tónsmíðar eftir Mozart þar sem finna áhrif frá Upplýsingarstefnunni. Einnig verður fjallað um kynni Magnúsar Stephensen af óperunni "Töfraflautunni" árið 1826, en Magnús var einmitt helsti forkólfur Upplýsingarstefnunnar á Íslandi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.

Frumflutt

4. júlí 2024

Aðgengilegt til

5. okt. 2024
Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,