Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sagnfræði við Williams-háskóla í Bandaríkjunum, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar. Staða mála fyrir botni Miðjarðarhafs og í Persaflóa var rædd, þróun mála og hvað er líklegt að verði.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá samkomu í íslenska sendiráðsbústaðnum í Berlín á dögunum þar sem sagt var frá þremur tónlistarmönnum af gyðingaættum sem flúðu til Íslands undan nasistum og settu svip sinn á landið. Hann ræddi líka við dóttur eins þeirra, Sibyl Kneihs, sem ólst upp á Íslandi og lítur enn á sig sem Íslending þó hún hafi búið í Vín í tæp 70 ár.
Í síðasta hluta þáttarins var rætt um geislavarnir og Tsjernobyl-slysið fyrir 40 árum. Elísabet Dolinda Ólafsdóttir, forstjóri Geislavarna ríkisins, kom í þáttinn.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-04-28
Elton John, Gladys Knight, Stevie Wonder, Dionne Warwick - That's what friends are for.
Elton John - Nikita.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Uppástand, þema: SUMAR. Arnar Már Ólafsson golfkennari.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.
Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar.


Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Í þessum þætti verður leikin tónlist eftir Béla Bartók. Fyrst verður fluttur strengjakvartett nr. 1 op. 7 eftur hann, og síðan nokkrar af 14 bagatellum op. 6 í flutningi Zoltán Kocsis. Á milli þessara verka munu hlustendur fá að heyra Bartók sjálfan leika eina af bagatellunum, þá nr. 2.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.
Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. apríl 1988.


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Sex listar eru í framboði í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Hlynur Bæringsson, Framsóknarflokki, Guðlaugur Kristmundsson, Viðreisn, Almar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Garðabæjarlistanum, Lárus Þór Guðmundsson, Miðflokki og Kjartan Atli Kjartansson, Samfylkingu.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Vecct-mílan fer fram í kvöld á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta skipti sem götumílukeppni er haldin á Íslandi og flestir af fremstu hlaupurum landsins hafa boðað komu sína. Markmiðiðið með Vecct-mílunni er að lyfta upp íslenskri hlaupa- og frjálsíþróttamenningu og gera millivegalengdahlaupum hærra undir höfði. Sem liður í því verður boðið upp á hæsta verðlaunafé í keppnishlaupi á Íslandi. Svo er stóra spurningin: Nær einhver að rjúfa fjögurra mínútna múrinn? Skipuleggjandinn Guðmundur Magnússon mætti í Morgunútvarpið.
Hópur líffræðinga hefur undanfarin þrjú sumur reynt að finna klakstöðvar lúsmýsins til þess að unnt sé að sporna við útbreiðslu þess. Í umfjöllun Vísis kemur fram að þrátt fyrir að gildrur hafi verið lagðar víða um land sé enn fátt um svör. En hvað höfum við lært? Þurfum við þjóðarátaki til að vinna bug á þessari plágu? Arnar Pálsson, prófessor við líf- og umhverfisdeild Háskóla Íslands, kom til okkar og sagði okkur frá þessum þörfu tilraunum til að útrýma lúsmýinu.
Oddvitasamtöl Heimildarinnar fara fram í forsal Tjarnarbíós dagana í vikunni og er það Valur Grettisson blaðamaður sem tekur á móti oddvitum Reykjavíkurframboðanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Valur kom til okkar og kafaði aðeins ofan í sveitarstjórnarmálin með okkur.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Battersea í London síðasta mánudag. Tilgangur heimsóknarinnar var að þrýsta á að Apple bjóði upp á íslensku í iOS-stýrikerfinu. Myndband þar sem Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir auk tónskáldsins Atla Örvarssonar senda Apple kveðju var hluti af áskorun Loga. Þá afhenti hann fyrirtækinu áskorun fyrir hönd ÖBÍ þar sem Apple var hvatt til þess að innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem sé aðgengi. Logi Einarsson kom í Morgunútvarpið.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Sex listar eru í framboði í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Hlynur Bæringsson, Framsóknarflokki, Guðlaugur Kristmundsson, Viðreisn, Almar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Garðabæjarlistanum, Lárus Þór Guðmundsson, Miðflokki og Kjartan Atli Kjartansson, Samfylkingu.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð.
Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg.
Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana.