Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð.
Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg.
Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana.
