12:42
Þetta helst
Sýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir sé gríðarleg vonbrigði.

Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var sendur út þann 9. október árið 1986.

Fjallað er um þessa ákvörðun og hún sett í samhengi við þá ákvörðun að Sýn seldi ekki stóran hluta af fjölmiðlum sínum til Símans fyrir 5,25 milljarða króna líkt og til stóð. Sýn skilaði árshlutauppgjöri í síðustu viku sem Björn Steinar Birgisson greinandi ræðir um.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,