12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 31. ágúst 2026

Útvarpsfréttir.

Sýn sendir út sinn síðasta sjónvarpsfréttatíma í kvöld. Á annan tug starfsmanna var sagt upp. Menningarráðherra segir greinilegt að staðan á fjölmiðlamarkaði sé bæði viðkvæm og erfið.

Skiptar skoðanir eru um það hvort rétt sé að draga aðildarumsókn Íslands að ESB frá 2009 formlega til baka eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um helgina. Þetta sagði utanríkisráðherra að loknum fundi með utanríkismálanefnd Alþingis í morgun.

SJÁ-samtökin segjast hafa varið um 80 milljónum í styrki til kosningabaráttunnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB. Áfram Ísland setti rúmlega 90 milljónir í sína baráttu. Litlar sem engar reglur gilda um fjármögnun og netbaráttu hreyfinganna.

Bandaríkjamenn og Íranar skiptust á árásum í gærkvöld og nótt í fyrsta sinn í mánuð. Íranar hafa hertekið flutningaskip á Hormússundi.

Áhöfn ferju sem hvolfdi undan ströndum Kýpur í gær hefur verið handtekin. Minnst átta farþegar fórust og átján er saknað.

Skagfirðingar eru beðnir um að fara sparlega með neysluvatn. Lítið er í vatnsbólum. Bora á tvær rannsóknarholur á næstu vikum .

Ísland mætir Tyrkjum í kvöld í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfubolta. Sérfræðingur telur að heimavöllurinn gæti skipt sköpum gegn sterku liði Tyrkja.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,