20:45
Samtíminn
Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum. Fjölmiðlar

Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er að gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson

Í þættinum verður fjallað um fjölmiðla á Íslandi og þróun fjölmiðlunar á síðustu áratugum, eða allt frá stríðslokum. Miklar breytingar hafa orðið á þessum tíma og umhverfi fjölmiðla gjörbreytt. Hvað olli þessum breytingum, hefur aðgengi fólks að fréttum aukist eða minnkað, hvert er hlutverk fjölmiðla á tímum upplýsingaóreiðu og fleira verður til umfjöllunar. Þátttaendur eru Valgerður Jóhannsdóttir dósent í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands og Birgir Guðmundsson prófessor við Háskólann á Akureyri í sömu fræðum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,