Í þættinum er dreginn fram samanburður á verkum eftir Halldór Laxness og prentuðum heimildum um Jökuldalsheiði frá svipuðu tímaskeiði.
Hjörtur Pálsson les nokkra kafla úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness; Brúðkaup, Leyndarmál, Kveðjur, Útirauðsmýri, Erindagerðir, Dagur á vorin, Lífið, Úti um heiminn, Vinstri vangi og blóð í grasi.
Baldvin Halldórsson les úr tímariti Máls og Menningar, Heiðin 1955, Um uppkast af Sjálfstæðu fólki eftir Peter Hallberg.
Klemenz Jónsson les kaflann Viðburðarrík vetrarferð úr bókinni Frá Valdastöðum til Vesturhúsa eftir Björn Jóhannsson.
Guðrún Birna Hannesdóttir les Möðrudalsþátt úr bókinni Á fjalla og dalaslóðum eftir Pál Guðmundsson.
Umsjón: Gunnar Valdimarsson
Þátturinn var fyrst á dagskrá 17. júlí 1977.