Í þættinum er dregin fram samanburður á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness og öðrum prentuðum heimildum um Jökuldalsheiði frá svipuðu tímaskeiði.
Hjörtur Pálsson les kaflana Rímukveðskapur, Líkmenn, Hörpudagar, Skýjarbrok, Erindagerðir, Trúmál og Blóð í grasi úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness.
Guðrún Birna Hannesdóttir les söguna Í Steinþórsbýlum úr Völuskjóðu og kaflann Aðsókn úr bókinni Vogrek eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur.
Sigþór Marinósson les kaflann Rúnasteinn úr bókinni Austurland - Jökuldalsheiðin og byggðin þar eftir Halldór Stefánsson.
Klemenz Jónsson les kaflana Líki fylgt til legstaðar og Síðasta ferð Þorsteins Sveinssonar úr bókinni Frá Valdastöðum til Veturhúsa eftir Björn Jóhannsson.