14:03
Leikið á píanó með huganum
2 . þáttur: Fyrir framan áhorfendur
Leikið á píanó með huganum

Á slóðum píanóleikarans Glenns Gould í Toronto.

Kanadíski píanóleikarinn Glenn Gould er af mörgum talinn einn merkasti tónlistarmaður 20. aldar, en samt hætti hann að leika á tónleikum aðeins þrjátíu og eins árs gamall og einbeitti sér eftir það að vinnu í hljóðverinu. Gould hóf tónlist sumra tónskálda upp til skýjanna og var til dæmis þekktur fyrir túlkun sína á verkum Bachs en leit um leið niður á önnur vel þekkt tónskáld píanóbókmenntanna. Gould var líka merkilegur fjölmiðlamaður og þekktur fyrir ýmsa sérvisku í sínu daglega lífi. Rætt er við nokkra af samferðamönnum Glenns Gould en þá hitti umsjónarmaður í heimaborg píanistans Toronto vorið 2023.

Umsjón: Guðni Tómasson.

Viðmælendur í þessum þætti: Stephen Posen, Faye Perkins, Colin Eatock, Ann McKeigan.

Umsjón: Guðni Tómasson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 54 mín.
e
Endurflutt.
,