15:03
Forboðnar sögur
Brunnur einmannaleikans
Forboðnar sögur

Tveir þættir, um rithöfunda sem skrifuðu um samkynhneigð á sínum tíma. Í fyrri þættinum er fjallað um E.M. Forster og bókina Maurice. Hún var samin á árunum 1913-14 en kom ekki út fyrr en eftir dauða Forsters árið 1970. Þar rekur Forster sögu unga miðstéttarmannsins Maurice Hall sem uppgötvar leyndar þrár sem samræmast ekki skoðunum samtímamanna hans og tilraunum hans til að lifa lífi sínu af heilindum. Forster var umhugað um að skrifa sögu sem fjallaði á jákvæðan og opinskáan hátt um málefni sem stóð honum nær og gerði sér aldrei vonir um að sagan yrði gefin út. Dró hann innblástur úr lífi sínu og samferðamanna sinna og var sagan í stanslausri mótun fram til ársins 1960. Þar sem henni var aldrei ætlað það hlutverk að uppfræða fáfróða lesendur um samkynhneigð eða standast þær útgáfukröfur sem gerðar voru í upphafi 20. aldarinnar stendur eftir tímalaus ástarsaga sem reynir umfram allt að uppfylla þrá höfundarins eftir sanngjarnari heimi.

Í seinni þættinum er fjallað um Brunn einmanaleikans eftir Radclyffe Hall, að hvaða leyti sagan er ævisöguleg og hvernig höfundur víkur út frá eigin reynslu til að söguhetjan falli betur að ráðandi kenningum um samkynhneigð. Bókinni er öðrum þræði ætlað að uppfræða almenning og höfundur leitar svara víða þannig að samkynhneigð söguhetjunnar virðist jafnhendis geta átt rætur í harmþrungnum örlögum hennar, líkamlegum eiginleikum, erfðum, gjörðum foreldra meðan hún var í móðurkviði eða uppeldi. Aðeins eitt er víst: söguhetjan hefur ekkert val. Brunnur einmanaleikans er harmþrungin saga sem endar á því að söguhetjan krefst réttlætis og skilnings samfélagsins eftir að hafa fórnað lífshamingjunni í þágu ástkonu sinnar. Þessi krafa átti eflaust sinn þátt í því að bókin var síðan bönnuð í Englandi.

Er aðgengilegt til 18. október 2025.
Lengd: 44 mín.
e
Endurflutt.
,