Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi er í dag. Íslenskir friðarsinnar koma saman á Klambratúni í kvöld af því tilefni og mynda saman mannlegt friðarmerki. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, verður fundarstjóri og hún sagði okkur frá í upphafi þáttar.
Sálfræðingar eru mikilvæg starfsstétt í nútímasamfélagi. Fjögur ár eru síðan niðurgreiðslur Sjúkratrygginga vegna sálfræðiþjónustu voru settar í lög en enn vantar ýmislegt upp á að það geti nýst almennilega. Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, kom til okkar og ræddi um störf og stöðu sálfræðinga.
Borgþór Arngrímsson sagði okkur tíðindi frá Danmörku. Til umræðu voru stjórnmál, dómsmál og málefni dýra, meðal annars.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði stýrivexti í morgun. Róbert Farestveit, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, brást við tíðindunum og ræddi um stöðu efnahagsmála.
Tónlist:
Halla Margrét Árnadóttir - Hægt og hljótt.
Young, Neil - Heart of gold.
Chiffons, The - One fine day.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Theódór Gunnar Smith, matreiðslumaður, sjósundkappi, öndunarleiðbeinandi, „kælari“, setti Íslandsmet í ísbaði í síðustu viku með því að vera 45 mínútur og sex sekúndur á kafi í vatni við frostmark. Metið var sett á Akureyri þar sem aðstoðarmenn jusu sífellt krapi niður í baðið til hans til að halda því nógu köldu. Við fengum að vita hvernig þessi þrekraun fór fram og hvað fer í gegnum hugann á meðan. Það er nauðsynlegt að taka það fram að ekki er mælst til þess að fólk dembi sér í svona mikla kælingu án þess að gæta fyllsta öryggis en undirbúningurinn var gríðarlegur og þar skipti öndun mikilu máli og eins verður að taka það fram að Theódór endaði á bráðamóttökunni þar sem hann fékk hjálp við að ná aftur eðlilegum líkamshita og var skammaður þar fyrir, því illa hefði getað farið. Theódór stendur að námskeiðum í öndun á vegum símenntunar Háskólans á Akureyri ásamt dr. Auðbjörgu Björnsdóttur sem er forstöðumaður kennlsu og upplýsingatæknisviðs H.A. Auðbjörg var í hljóðveri RÚV fyrir norðan með Guðrúnu á meðan Theódór var ásamt Gunnari fyrir sunnan.
Svo kom Þráinn Þorvaldsson í þáttinn. Hann hefur, ásamt öðrum, verið að vinna því því að stofna Samtökin Sólskinsstundir sem veita fólki sem hefur misst maka félagslegan vettvang til þess að hittast, fá stuðning, sækja menningarviðburði, borða saman, drekka kaffi og ferðast saman innanlands eða jafnvel erlendis. Þráinn sagði okkur frá sinni reynslu, en hann missti eiginkonu sína, Elínu Guðrúnu Óskarsdóttur, fyrir níu mánuðum og hann vill með þessu búa til vettvang fyrir fólk sem hefur reynslu af makamissi að hittast, vera félagsskapur og stuðningur. Þráinn benti á netfang sitt, ef fólk hefur áhuga á því að taka þátt í stofnun samtakanna: [email protected]
Tónlist í þættinum:
Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi Morthens)
Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg)
Ljúfa langa sumar / Ragnar Bjarnason (Gunnar Þórðarsson og Ólafur Gaukur Þórhallsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Átök hafa brotist út milli landhers Ísraelsmanna og Hezbollah-samtakanna í suðurhluta Líbanon. Ísraelsmenn hafa bannað framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna að koma til Ísraels þar sem hann hafi ekki fordæmt árás Írana á Ísrael í gær.
Vaxtalækkun Seðlabankans í morgun, um núll komma tuttugu og fimm prósentur, er tekin í trausti þess að meira jafnvægi sé að komast á í íslensku efnahagslífi, segir seðlabankastjóri. Forseti ASÍ fagnar lækkuninni og segir eðlilegt að stíga varlega til jarðar.
Samdráttur varð í losun gróðurhúsalofttegunda milli ára. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir Ísland á réttri leið en enn sé langt í land ætli stjórnvöld að ná markmiðum sínum.
Bretar vilja meira samstarf við Evrópusambandið, til dæmis á sviði öryggismála en eru tregir til að rýmka reglur um dvalarleyfi. Forsætisráðherra Bretlands kemur til Brussel í dag.
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir verulega reyna á langlundargeð stjórnarflokkanna og spyr hvort ástæða sé að bíða til vors með alþingiskosningar.
Kappræður varaforsetaefnanna í Bandaríkjunum í gærkvöld voru að mestu yfirvegaðar. Flestum þótti varaforsetaefni Repúblikana standa sig betur.
Jólin eru komin í Venesúela að fyrirskipun forseta landsins. Jólagleðin virðist þó víðs fjarri.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Formaður bæjarráðs Ölfuss, Grétar Ingi Erlendssson, á hlut í eignarhaldsfélagi sem ætlar að byggja tæplega 100 íbúðir í Ölfusi. Íbúðirnar eiga að rísa á svæði sem kallast Bakkamelur. Þetta svæði liggur við veginn á milli Þorlákshafnar og Hveragerðis. Grétar Ingi er einn af eigendum félagsins Bakkamelur ehf. sem mun standa að byggingu íbúðanna.
Viðskipti og framkvæmdir þessa félags eru nú til meðferðar hjá sveitarstjórn Ölfuss en gera þarf ráð fyrir íbúðunum í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Í sumar var gerð breyting á aðalskipulagi Ölfuss í bæjarstjórn þar sem gert er ráð fyrir því að fjöldi íbúða á svæðinu verði nærlega fjórfaldaður. Fjöldi íbúða á að fara úr 25 upp í allt að 95. Grétar Ingi sat þennan fund en vék af honum vegna tengsla vinnuveitanda hans, Einars Sigurðssonar, við málið, að sögn fulltrúa í minnihlutanum Í Ölfusi.
Grétar Ingi segir að hann hafi ekki talið þörf á því að tilgreina sérstaklega að hann væri hluthafi í félaginu. Hann hafi talið nóg að segja að hann tengdist félaginu. Fulltrúar minnihlutans í Ölfusi vissu ekki að Grétar Ingi væri hluthafi í félaginu þegar þeir greiddu atkvæði með breytingunni á aðalskipulaginu.
Rætt er við Grétar Inga, Gunnstein Ómarsson, Elliða Vignisson, Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur og Eirík Vigni Pálsson um þetta mál.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.
Netfang: [email protected]
Í tæp fjögur ár hefur línuritið sem sýnir meginvexti Seðlabankans hækkað með mislöngum hléum, grafið sýnir ójafnan en brattan tröppugang upp á við - en í dag leitaði það örlítið niður á við aftur. Peningastefnunefnd lækkaði stýrivextina úr 9,25 prósentum í slétt níu. Þetta eru tímamót en óljóst hvaða þýðingu þau hafa og vextirnir enn helvíti háir svo vitnað sé í seðlabankastjóra sjálfan. Við fengum viðbrögð nokkurra vegfarenda í Skeifunni í Reykjavík við þessum tíðindum.
Facebook-hópurinn Fjármálatips er einn sá vinsælasti á landinu með yfir fimmtíu þúsund meðlimi. Við ætlum að ræða við Sindra Má Friðriksson, hann stýrir Fjármálatips og raunar hópnum Verðbréfatips líka og fær nokkuð sérstaka innsýn í fjárhag landsmanna.
Hefur það hvað börn og ungmenni læra í dag eitthvað með umhverfismál og áskoranir mannkyns að gera. Svarið er já en það virðist ekki augljóst í augum allra. Við fáum pistil um þetta frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi.
Síðan heimsækjum við Foreldrahús, ráðgjafamiðstöð fyrir börn og foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga-, og vímuefnavanda. Við ætlum að fræðast um starfsemi Foreldrahúsa, um hvernig miðstöðin nálgast yfirstandandi umræðu um vopnaburð, ofbeldi og vímuefnaneyslu meðal barna og ungmenna, og hvort starfsemin sé í hættu vegna viðvarandi fjárskorts.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Matthías Hemstock er gestur Djasslands. Þeir Pétur Grétarsson tala saman um tromuleikarann Jeff "Tain" Watts og list hans. Tónlistin er þrungin dæmum um leik Watts. Einnig er rætt um samstarf Matthíasar við Richard Andersson og ýmislegt fleira.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-10-02
Hilmar Jensson - Undo.
Kvartett Wynton Marsalis & Joe Henderson - Thick In The South.
Marsalis, Branford Trio - Citizen tain.
Richard Anderson NOR, Watts, Jeff, Winther, Carl - Requiem for JW.
Matthías Hemstock, Jóel Pálsson, Tómas R. Einarsson, Winther, Jens, Eyþór Gunnarsson - Undir 4.
Richard Anderson NOR, Watts, Jeff, Winther, Carl - My Old Flame.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Jón Ármann Héðinsson, fyrrverandi sjómaður, útgerðarmaður og þingmaður með meiru, segir frá því þegar hann byrjaði ungur á sjó með föður sínum en fór fljótlega að huga að eigin útgerð, fyrst á árabátum og svo á stærri bátum og skipum. Jón stofnaði um 1954 ásamt Maríusi bróður sínum útgerðarfyrirtækið Hreifa sem gerði út tvö stálskip með nafninu Héðinn, hvort á eftir öðru. Jón Ármann segir frá síldveiðunum, tvílembingum og þrílembingum sem svo voru kallaðir, litlir síldarbátar sem unnu saman að veiðunum, einnig frá stærri síldarskipunum og snurpubátunum. Rætt er um stríðsárin á Húsavík. Hernaðarbröltið var ekki mjög áberandi þar en á þeim árum var mikið hlustað á útvarpið og á talstöðvasamskipti sjómanna á hafi úti, meðal annars komið saman hjá skósmiðum bæjarins þar sem bæði voru útvarpstæki og talstöðvar til að hlusta á. Minnst er á Binna í Gröf sem var atkvæðamikill á Húsavík á þessum árum og Færeyinga sem þar komu líka á skipum sínum, Jón Ármann ræðir um nýtingu sjófugla og rjúpu og ræðir um eðlilega nýtingu þess sem sjórinn gefur.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir var komin með nóg af klisjukenndum kvenpersónum þegar hún hófst handa við að skrifa Elskling. Aðalpersóna Elskling er ófullkomin og þreytt fjögurra barna móðir sem reynir að sinna starfsframanum um leið og hún reynir að halda hjónabandinu gangandi. Elskling hefur sópað að sér verðlaunum og góðri gagnrýni frá því að hún var frumsýnd í sumar, en hún er er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Lilja bæði skrifar og leikstýrir. Hún á að baki fjölda stuttmynda og einnig fjórar kvikmyndir sem hún var handritshöfundur að, og segir Lilja sjálf að hún líti fyrst og fremst á sig sem handritshöfund, hún sé leikstýrandi handritshöfundur.
Lilja er dóttir norska þýðandans Tone Myklebost, sem er margverðlaunuð fyrir þýðingar úr íslensku yfir á norsku, og Ingólfs heitins Margeirssonar, blaðamanns og rithöfundar sem lést vorið 2011. Hún ólst upp bæði á Íslandi og í Noregi en lærði kvikmyndagerð í London og Prag. Hún bjó um tíma í París þar sem hún gerði yfir 20 stuttmyndir en býr í dag í Osló þar sem hún kennir við kvikmyndaháskólann og elur upp börnin sín fjögur auk þess að starfa við kvikmyndagerðina.
Lilja Ingólfsdóttir, handritshöfundur og kvikmyndaleikstjóri, er gestur okkar í svipmynd dagsins.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Popp og pólitík
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson
Af hverju eru allir að deila hlekkjum í efstu athugasemd á Facebook? Við pælum í Meta-algóryþmanum, ritskoðun á færslum tengdum Palestínu og fleiri samfélagsmiðlamálum með Sigurði Svanssyni.
Haukur Már Helgason, rithöfundur, heldur áfram að pæla í hugtakinu upplýsingaóreiða.
Kvikmyndirnar No Other Land, Temporary Shelter og Grand Tour verða teknar fyrir í RIFF-rýni dagsins.
Kvöldfréttir útvarps
Bandaríkjaforseti styður ekki mögulegar árásir Ísraela á kjarnorkuver Írana. Ísraelar heita hefndum fyrir eldflaugaárás gærdagsins og Íranir lofa enn harðari viðbrögðum við þeim.
Þótt stýrivextir hafi verið lækkaðir í morgun er ekki þar með sagt að þeir verði lækkaðir aftur næst, segir aðalhagfræðingur Landsbankans. Hún telur svo litla lækkun á þetta háum vöxtum ekki hafa mikil áhrif.
RARIK telur að um 15 þúsund og fimm hundruð heimili og fyrirtæki hafi orðið fyrir raski vegna víðtækra rafmagnstruflana í dag. Raftæki skemmdust og hvetur RARIK notendur til að tilkynna tjón.
Einhverfusamtökin segja neyðarástand ríkja í skólamálum einhverfra barna. Þeim sé flestum synjað um skólavist á sérhæfðri deild og send í almenna skóla, þar sem þeim sé ekki tryggð nauðsynleg aðstoð.
Formaður Læknafélags Íslands skilur ekki hvernig gat gerst að geðlæknir náði að ávísa lyfjum á löngu látna manneskju í áraraðir. Varnir séu augljóslega ekki nógu öflugar.
Samningaviðræður standa á milli Reykjavíkurborgar og rekstrarfélags í Perlunni um kaup á húsinu. Kauptilboðið var það sama og borgin sóttist eftir eða þrír og hálfum milljarður.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tók í dag varfærin skref í átt að lækkun stýrivaxta þegar þeir voru lækkaðir úr níu komma tuttugu og fimm prósentum í níu. Greiningardeildir bankanna höfðu flestar spáð því að stýrivextir yrðu óbreyttir. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir ákvörðun peningastefnunefndar hafa komið á óvart og það hafi mátt sjá þess merki þegar ákvörðunin var kynnt að fólk liti þróun mála ekki alveg sömu augum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Unu.
Um 350.000 manns, þar af rúmlega 120.000 börn, hafa þegar flúið heimili sín í sunnaverðu Líbanon vegna harðra og viðvarandi loft- og flugskeytaárása Ísraela undanfarna daga og innrásar landhersins í kjölfarið. Staðfest er að hátt í hundrað börn hafi fallið í árásum undanfarinna daga og mörg hundruð særst. Ljóst sé að frekari stigmögnun átaka muni gera hörmulega stöðu barna í Líbanon enn verri. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir þetta einungis staðfesta það sem lengi hefur verið vitað: Að stríðsátök bitni iðulega verst á þeim sem síst skyldi og minnsta bera ábyrgðina - börnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Birnu.
Smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá hefur lengi verið í undirbúningi, farið var í mat á umhverfisáhrifum og frumhönnun á árunum 2007 og 8, verkið loks boðið út í fyrra og því ferli ekki lokið segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunar hjá Vegagerðinni. Beðið er lokaheimilda frá fjármálaráðuneytinu til að ljúka samningum við þá einu sem gerðu tilboð. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Veðurstofa Íslands.
Tónleikahljóðritanir með innlendum og erlendum flytjendum.
Síðari hluti hljóðritunar frá hátíðartónleikum sem fram fóru í Tónlistarhúsinu í Óðinsvéum, 30. maí sl. þegar svissneska flautuleikaranum, Emmanuel Pahud, voru veitt Léonie Sonning verðlaunin.
Á efnisskrá:
*Helios op. 17, forleikur eftir Carl Nielsen.
*Flautukonsert eftir Carl Nielsen.
*Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Claude Debussy.
*Tónlist fyrir flautu, strengi og slagverk eftir Sofiu Gubaidulinu.
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveitin í Óðinsvéum.
Einleikari: Emmanuel Pahud.
Stjórnandi: Anu Tall.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.
Netfang: [email protected]
Í tæp fjögur ár hefur línuritið sem sýnir meginvexti Seðlabankans hækkað með mislöngum hléum, grafið sýnir ójafnan en brattan tröppugang upp á við - en í dag leitaði það örlítið niður á við aftur. Peningastefnunefnd lækkaði stýrivextina úr 9,25 prósentum í slétt níu. Þetta eru tímamót en óljóst hvaða þýðingu þau hafa og vextirnir enn helvíti háir svo vitnað sé í seðlabankastjóra sjálfan. Við fengum viðbrögð nokkurra vegfarenda í Skeifunni í Reykjavík við þessum tíðindum.
Facebook-hópurinn Fjármálatips er einn sá vinsælasti á landinu með yfir fimmtíu þúsund meðlimi. Við ætlum að ræða við Sindra Má Friðriksson, hann stýrir Fjármálatips og raunar hópnum Verðbréfatips líka og fær nokkuð sérstaka innsýn í fjárhag landsmanna.
Hefur það hvað börn og ungmenni læra í dag eitthvað með umhverfismál og áskoranir mannkyns að gera. Svarið er já en það virðist ekki augljóst í augum allra. Við fáum pistil um þetta frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi.
Síðan heimsækjum við Foreldrahús, ráðgjafamiðstöð fyrir börn og foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga-, og vímuefnavanda. Við ætlum að fræðast um starfsemi Foreldrahúsa, um hvernig miðstöðin nálgast yfirstandandi umræðu um vopnaburð, ofbeldi og vímuefnaneyslu meðal barna og ungmenna, og hvort starfsemin sé í hættu vegna viðvarandi fjárskorts.
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Þórhallur Sigurðsson les. Sagan fjallar um Íslending sem hvarf að heiman um dimma nótt frá fjölskyldu sinni og vinum og endaði sem einkaþjónn hjá bandaríska auðkýfingnum William Randolph Hearst eftir fyrri heimsstyrjöld. Hvers vegna yfirgaf hann konu sína og börn, blómlegt fyrirtæki og trausta stöðu í Reykjavík? Hvernig lenti hann í höll Hearsts blaðakóngs í Kaliforníu? (Áður á dagskrá 2010)
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Theódór Gunnar Smith, matreiðslumaður, sjósundkappi, öndunarleiðbeinandi, „kælari“, setti Íslandsmet í ísbaði í síðustu viku með því að vera 45 mínútur og sex sekúndur á kafi í vatni við frostmark. Metið var sett á Akureyri þar sem aðstoðarmenn jusu sífellt krapi niður í baðið til hans til að halda því nógu köldu. Við fengum að vita hvernig þessi þrekraun fór fram og hvað fer í gegnum hugann á meðan. Það er nauðsynlegt að taka það fram að ekki er mælst til þess að fólk dembi sér í svona mikla kælingu án þess að gæta fyllsta öryggis en undirbúningurinn var gríðarlegur og þar skipti öndun mikilu máli og eins verður að taka það fram að Theódór endaði á bráðamóttökunni þar sem hann fékk hjálp við að ná aftur eðlilegum líkamshita og var skammaður þar fyrir, því illa hefði getað farið. Theódór stendur að námskeiðum í öndun á vegum símenntunar Háskólans á Akureyri ásamt dr. Auðbjörgu Björnsdóttur sem er forstöðumaður kennlsu og upplýsingatæknisviðs H.A. Auðbjörg var í hljóðveri RÚV fyrir norðan með Guðrúnu á meðan Theódór var ásamt Gunnari fyrir sunnan.
Svo kom Þráinn Þorvaldsson í þáttinn. Hann hefur, ásamt öðrum, verið að vinna því því að stofna Samtökin Sólskinsstundir sem veita fólki sem hefur misst maka félagslegan vettvang til þess að hittast, fá stuðning, sækja menningarviðburði, borða saman, drekka kaffi og ferðast saman innanlands eða jafnvel erlendis. Þráinn sagði okkur frá sinni reynslu, en hann missti eiginkonu sína, Elínu Guðrúnu Óskarsdóttur, fyrir níu mánuðum og hann vill með þessu búa til vettvang fyrir fólk sem hefur reynslu af makamissi að hittast, vera félagsskapur og stuðningur. Þráinn benti á netfang sitt, ef fólk hefur áhuga á því að taka þátt í stofnun samtakanna: [email protected]
Tónlist í þættinum:
Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi Morthens)
Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg)
Ljúfa langa sumar / Ragnar Bjarnason (Gunnar Þórðarsson og Ólafur Gaukur Þórhallsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson
Af hverju eru allir að deila hlekkjum í efstu athugasemd á Facebook? Við pælum í Meta-algóryþmanum, ritskoðun á færslum tengdum Palestínu og fleiri samfélagsmiðlamálum með Sigurði Svanssyni.
Haukur Már Helgason, rithöfundur, heldur áfram að pæla í hugtakinu upplýsingaóreiða.
Kvikmyndirnar No Other Land, Temporary Shelter og Grand Tour verða teknar fyrir í RIFF-rýni dagsins.
Útvarpsfréttir.
Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, verður gestur okkar í upphafi þáttar þegar við ræðum áfram átökin fyrir botni Miðjarðarhafs.
Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, ræðir við okkur um nýjar tölur frá Hagstofu Evrópusambandsins um ungt fólk sem býr enn í foreldrahúsum.
Í gær var sagt frá skýrslu Vinnueftirlitsins um slysið sem varð í Grindavík þann 10. janúar. Þar segir að áhættumat hafi ekki verið til staðar og spurt hvort verkefnið hafi verið áhættunnar virði. Við ræðum við Árna Þór Sigurðsson formann Grindavíkurnefndar um aðgengi og aðstæður í Grindavík.
Seðlabankinn tilkynnir stýrivaxtaákvörðun sína í dag, en þeir hafa verið óbreyttir í níu komma tuttugu og fimm prósentum í rúmt ár. Við ræðum ákvörðunina við Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital.
Við ætlum að ræða það hvernig við metum það ómetanlega til fjár við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, Prófessor í Hagfræði.
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Tom Petty dó á þessum degi 2017 svo við minnumst hans, en einnig útgáfu What's the story morning glory með Oasis, afmæli Sting, plötu vikunnar og margt fleira!
Lagalisti:
NÝDÖNSK - Á plánetunni jörð.
THE POLICE - Don't Stand So Close To Me.
Malen - Anywhere.
LENNY KRAVITZ - It ain't over 'til it's over.
FOALS - My Number.
Teddy Swims - Bad Dreams.
Fjallabræður, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Emmsjé Gauti - Fullkominn dagur til að kveikja í sér.
Yanya, Nilüfer - Like I Say (I Runaway).
SIMPLE MINDS - Don't You (Forget About Me).
Green, Al - Take me to the river.
Fonetik Simbol, Kött Grá Pjé - Tíkarlegir bílar.
Kahan, Noah, Lumineers, The, Bay, James - Up All Night.
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Ást.
Alabama Shakes - Sound & Color.
NEW RADICALS - You Get What You Give.
Soundthing - Imogen.
Carpenter, Sabrina - Taste.
MGMT - Time To Pretend.
Oasis - Champagne supernova.
Wallen, Morgan, Post Malone - I Had Some Help.
Black Pumas - Mrs. Postman.
The Moldy Peaches - Anyone Else But You.
TRÚBROT - My Friend And I.
Lón - Rainbow.
TOM PETTY - Free Fallin'.
Fontaines D.C. - In The Modern World.
Unnsteinn Manuel Stefánsson, GDRN - Utan þjónustusvæðis.
PAOLO NUTINI - Candy.
GUS GUS - David [Radio Edit].
Sykur - Svefneyjar.
INSPECTOR SPACETIME - Hitta mig.
TODD TERJE - Strandbar.
Ásdís, Purple Disco Machine - Beat Of Your Heart.
CHRISTINE AND THE QUEENS - Tilted.
Jungle - Let's Go Back.
Supersport! - God is change.
TODMOBILE - Lestin.
TEARS FOR FEARS - Everybody Wants To Rule The World.
Pearl Jam - Waiting for Stevie.
Fleetwood Mac - You make loving fun.
Unnsteinn Manuel - Lúser.
Þorsteinn Einarsson, Steinunn Jónsdóttir - Á köldum kvöldum.
Sharon Jones & The Dapkings - How Long Do I Have To Wait For You.
Kaleo - USA Today.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Átök hafa brotist út milli landhers Ísraelsmanna og Hezbollah-samtakanna í suðurhluta Líbanon. Ísraelsmenn hafa bannað framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna að koma til Ísraels þar sem hann hafi ekki fordæmt árás Írana á Ísrael í gær.
Vaxtalækkun Seðlabankans í morgun, um núll komma tuttugu og fimm prósentur, er tekin í trausti þess að meira jafnvægi sé að komast á í íslensku efnahagslífi, segir seðlabankastjóri. Forseti ASÍ fagnar lækkuninni og segir eðlilegt að stíga varlega til jarðar.
Samdráttur varð í losun gróðurhúsalofttegunda milli ára. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir Ísland á réttri leið en enn sé langt í land ætli stjórnvöld að ná markmiðum sínum.
Bretar vilja meira samstarf við Evrópusambandið, til dæmis á sviði öryggismála en eru tregir til að rýmka reglur um dvalarleyfi. Forsætisráðherra Bretlands kemur til Brussel í dag.
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir verulega reyna á langlundargeð stjórnarflokkanna og spyr hvort ástæða sé að bíða til vors með alþingiskosningar.
Kappræður varaforsetaefnanna í Bandaríkjunum í gærkvöld voru að mestu yfirvegaðar. Flestum þótti varaforsetaefni Repúblikana standa sig betur.
Jólin eru komin í Venesúela að fyrirskipun forseta landsins. Jólagleðin virðist þó víðs fjarri.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Siggi og Lovísa stýrðu þætti dagsins, miðvikudagur til mikillar nýrrar tónlistar. Nýtt frá Luigi, Michael Kiwanuka, Teddy Swims, Bon Iver og fleirum. Plata vikunnar, allt sem hefur gerst, með hljómsveitinni Supersport á sínum stað sem og brot út nýjustu þáttaröð Árið er.
SSSÓL - Uppsprettan.
ROLLING STONES - She's a Rainbow.
Friðrik Ómar - Somewhere Over The Rainbow.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Barn.
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Passíusálmur Nr. 51.
ÞOKKABÓT - Miðvikudagur.
Heavy Heavy, The - Happiness.
Teddy Swims - Bad Dreams.
Snorri Helgason - Aron.
Paul, Billy - Your song.
THE BLACK KEYS - Dead And Gone.
Nýdönsk - Fullkomið farartæki.
Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm., Bríet - Komast heim.
Weeknd, The - Dancing in the flames.
Quincy Jones - Ai No Corrida.
Elín Ey - Ljósið.
Elín Hall - Hafið er svart.
Una Torfadóttir - Appelsínugult myrkur.
Rogers, Maggie - The Kill.
TOM PETTY - I Won't Back Down.
Kiwanuka, Michael - Lowdown (part i).
Lacey, Yazmin, Ezra Collective - God Gave Me Feet For Dancing.
ÁSGEIR TRAUSTI - Hringsól.
Bon Iver - Speyside.
Kings of Convenience - Rule my world.
USSEL, Króli, Jóipé x Króli, JóiPé - Í Fullri Hreinskilni.
Luigi - Vinir.
Vampire Weekend - A Punk.
Burna Boy, Tini, Little Simz, Elyanna, Coldplay - WE PRAY.
TRABANT - The One (The Filthy Duke Remix).
KÁRI - Sleepwalking.
Beabadoobee - Ever Seen.
NÝDÖNSK - Horfðu til himins.
MALEN - Anywhere.
RAZORLIGHT - America.
ÁRIÐ ER BROT.
GOOD NEIGHBOURS - Home.
VANCE JOY - Riptide.
SUPERSPORT! - Britney.
LADY GAGA & BRUNO MARS - Die With a Smile.
BILL WITHERS - Lovely Day.
BAGGALÚTUR & GDRN - HJUTS ESS BANSI.
HönnunarÞing er hátíð hönnunar og nýsköpunar, haldin á Húsavík um helgina. Áhersla ársins er tónlist og margvíslegar birtingarmyndir snertiflata hönnunar og tónlistar. Á dagskránni verða meðal annars erindi frá prófessor við Listaháskóla Íslands, bátahönnuður, hugarheimur Skálmaldar, ný hljóðtækni, stjórnarmanneskja frá Bang & Olfusen og tónlistaruppákomur. Til að segja okkur nánar af þessu mættu til okkar þau Snæbjörn Ragnarsson tónlistarmaður í Skálmöld og Steinunn Eldflaug Harðardóttir, DJ Flugvél og geimskip, en þau eru bæði með fyrirlestra á hönnunarþinginu.
Eltum veðrið er nýtt leikrit, samið af mörgum fremstu gamanleikurum þjóðarinnar úr leikhópi Þjóðleikhússins, og unnið upp úr missönnum sögum af útilegum á Íslandi þar sem allt fer í steik. Óborganlegar aðstæður sem við þekkjum öll – alltof vel. Við fengum þau Guðjón Davíð Karlsson, Góa og Hildi Völu Baldursdóttur leikara í sýningunni til þess að segja okkur meira.
Og eins og venjulega á miðvikudögum kom Atli Fannar Bjarkason til okkar í liðinn Meme vikunnar. Þar sem hann segir okkur af því nýjasta, óvænta og skrýtna sem finnst á veraldarvefnum hverju sinni og að þessu sinni var þetta upptaka úr X-factor í Bretlandi frá 2007 sem fer nú eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlinum Tik Tok.
Á morgun verða haldnir styrktartónleikar í minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem lést þann 30. ágúst síðastliðinn. Tónleikarnir verða haldnir í stóra salnum í Háskólabíó og fremstu tónlistarmenn landsins munu koma fram. Inga Lilja Ómarsdóttir og Helga Hrund Ólafsdóttir skólasystur Bryndísar Klöru komu til okkar í þáttinn og sögðu okkur frá.
Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíð verður haldin í Reykjavík 26. október og stendur til 3. nóvember. Þar verður boðið upp á kvikmyndir, fræðslu og alls kyns námskeið fyrir öll börn á grunnskólastigi á landinu. Lísa Björg Attensperger, stjórnandi Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík og Ása Baldursdóttur, dagskrárstjóri Bíó Paradís komu til okkar og sögðu okkur af því allra helsta sem þar verður boðið upp á.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, annar af forsvarsmönnum Hjartans í Vatnsmýrinni, nefndamaður í umhverfis- og samgöngunefnd og formaður fjárlaganefndar ræddi við okkur um nýja skýrslu sem kynnt var í gær um flugvöll í Hvassahrauni.
Lagalisti:
Á Móti Sól - Hvar Sem Ég Fer.
Skálmöld - Ratatoskur.
Stuðmenn - Betri Tíð.
Leikhópur Eltum veðrið - Söngur lúsmýsins (pínulítið blóð).
Friðrik Dór Jónsson - Aftur ung (Dansaðu við mig).
Curtis Harding - I Won't Let You Down.
Bachman-Turner Overdrive - You Ain't Seen Nothing Yet.
Ultraflex - Say Goodbye.
Fleetwood Mac - As long as you follow
Moses Hightower - Sjáum hvað setur
Elín Hall - Hafið er svart
Sabrina Carpenter - Taste
Kvöldfréttir útvarps
Bandaríkjaforseti styður ekki mögulegar árásir Ísraela á kjarnorkuver Írana. Ísraelar heita hefndum fyrir eldflaugaárás gærdagsins og Íranir lofa enn harðari viðbrögðum við þeim.
Þótt stýrivextir hafi verið lækkaðir í morgun er ekki þar með sagt að þeir verði lækkaðir aftur næst, segir aðalhagfræðingur Landsbankans. Hún telur svo litla lækkun á þetta háum vöxtum ekki hafa mikil áhrif.
RARIK telur að um 15 þúsund og fimm hundruð heimili og fyrirtæki hafi orðið fyrir raski vegna víðtækra rafmagnstruflana í dag. Raftæki skemmdust og hvetur RARIK notendur til að tilkynna tjón.
Einhverfusamtökin segja neyðarástand ríkja í skólamálum einhverfra barna. Þeim sé flestum synjað um skólavist á sérhæfðri deild og send í almenna skóla, þar sem þeim sé ekki tryggð nauðsynleg aðstoð.
Formaður Læknafélags Íslands skilur ekki hvernig gat gerst að geðlæknir náði að ávísa lyfjum á löngu látna manneskju í áraraðir. Varnir séu augljóslega ekki nógu öflugar.
Samningaviðræður standa á milli Reykjavíkurborgar og rekstrarfélags í Perlunni um kaup á húsinu. Kauptilboðið var það sama og borgin sóttist eftir eða þrír og hálfum milljarður.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tók í dag varfærin skref í átt að lækkun stýrivaxta þegar þeir voru lækkaðir úr níu komma tuttugu og fimm prósentum í níu. Greiningardeildir bankanna höfðu flestar spáð því að stýrivextir yrðu óbreyttir. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir ákvörðun peningastefnunefndar hafa komið á óvart og það hafi mátt sjá þess merki þegar ákvörðunin var kynnt að fólk liti þróun mála ekki alveg sömu augum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Unu.
Um 350.000 manns, þar af rúmlega 120.000 börn, hafa þegar flúið heimili sín í sunnaverðu Líbanon vegna harðra og viðvarandi loft- og flugskeytaárása Ísraela undanfarna daga og innrásar landhersins í kjölfarið. Staðfest er að hátt í hundrað börn hafi fallið í árásum undanfarinna daga og mörg hundruð særst. Ljóst sé að frekari stigmögnun átaka muni gera hörmulega stöðu barna í Líbanon enn verri. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir þetta einungis staðfesta það sem lengi hefur verið vitað: Að stríðsátök bitni iðulega verst á þeim sem síst skyldi og minnsta bera ábyrgðina - börnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Birnu.
Smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá hefur lengi verið í undirbúningi, farið var í mat á umhverfisáhrifum og frumhönnun á árunum 2007 og 8, verkið loks boðið út í fyrra og því ferli ekki lokið segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunar hjá Vegagerðinni. Beðið er lokaheimilda frá fjármálaráðuneytinu til að ljúka samningum við þá einu sem gerðu tilboð. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á föstudögum er sulta dagsins indie disco.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Við höldum áfram að sparka október í gang á Kvöldvaktinni með nýrri tónlist og meðal þeirra sem fara ó loftið í kvöld eru þau; Kaktus Einarsson og Damon Albarn, The Cure, Kavinski, Pet Shop Boys, Royel Otis, Men I Trust, Rex Orange County, Charli XCX, Metronomy og fleiri og fleiri.
Lagalistinn
Kaktus Einarsson - Gumbri (ásamt Damon Albarn).
Depeche Mode - Enjoy the Silance
Aron Can - Poppstirni.
Phoenix, Angèle, Kavinsky - Nightcall.
Pet Shop Boys - Feel
Elín Hall - Hafið er svart.
Cure - Alone.
Cocteau Twins - Heaven on Las Vegas.
Fontaines D.C. - In The Modern World.
Kim Deal - Crystal Breath
Ágúst Elí - Hví ekki?.
Suki Waterhouse - Model, Actress, Whatever.
Shins, The - New slang.
Royel Otis - Til The Morning.
WIRE - Mannequin.
Men I Trust - Husk
Bright eyes - Rainbow Overpass
Katla Yamagata - Ránfugl.
GDRN - Lætur mig Ft. Flóni.
Clementine Douglas - Slippin'.
SOPHIE, BC Kingdom, Kimm Petras - Reason Why
Charli XCX ft Troye Sivan - Talk talk
Metronomy, Porji - Petit Boy.
Jamie xx - Waited All Night (ft. Romy & Oliver Sim).
Faithless - God is a DJ.
FKA twigs - Eusexua.
Bon Iver - Speyside.
Teitur - Barn.
VELVET UNDERGROUND - Stephanie Says
Sigurður Guðmundsson, Bríet - Komast heim.
MJ Lenderman - Wristwatch.
Supersport! - God is change.
Hard-Fi - Always and Forever.
Malen - Anywhere.
MAC DEMARCO - Nobody.
Maggie Rogers - The Kill
Sabrina Carpenter - Taste
The Flaming Lips - Waitin' For Superman
The Beaches - Jocelyn
The Clash - Spanish Bombs
Voidz - 7 Horses
Fat Freddy Drop - Next Stop
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.