16:05
Víðsjá
Svipmynd / Linda Vilhjálmsdóttir
Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Linda Vilhjálmsdóttir er fædd árið 1958 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún fann ung að hún væri góð í að setja saman orð, hóf að skrifa ljóð í barnaskóla og las allt sem hún komst í á bókasafni Seltjarnarness. Hún var líka ung þegar hún fór að vinna fyrir sér, fyrst með barnapössun og síðar í fiski. Þegar hún hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík upplifði hún í fyrsta sinn stéttarvitund en uppgötvaði svo síðar á lífsleiðinni að það sem hafði mótað hana mest var að alast upp sem stúlka í feðraveldi. Linda lærði til sjúkraliða og starfaði lengi við fagið og segir það einnig hafa opnað augu sín fyrir nýjum veruleika.

Linda hefur hlotið mikið lof fyrir ljóð sín og ýmis verðlaun og viðurkenningar hafa fallið henni í skaut. Það er óhætt að segja að rödd Lindu sé einstök í landslagi íslenskra bókmennta og það er mikill fengur að nú sé komið út heildarsafn allra ljóðabókanna níu. Við ætlum að ræða þetta splunkunýja heildarsafn við Lindu í þætti dagsins, og auðvitað margt fleira.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,