26. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Í sófanum að þessu sinni eru þau Gunnar Nelson, Saga Garðarsdóttir og Ragnar Ísleifur Bragason.
Berglind Festival fer á stúfana í nýjustu stórborg Íslands.
Daniil og Friðrik Dór taka lagið Aleinn en Daniil flytur einnig lagið Ef þeir vilja beef ásamt Joey Christ.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.