26. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Gestir þáttarins eru Hera Hilmarsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir og Sigmar Guðmundsson
GDRN og Magnús Jóhann Ragnarsson opna þáttinn með laginu Einhvers staðar einhvern tímann aftur og flytja seinna í þættinum Hvert örstutt spor.
Berglind Festival ætlar að berjast fyrir nýjum frídegi á haustinn.
Í lok þáttarins tekur Vök lagið Something Bad.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.